Nýjar COVID reglur sem gilda frá 8. febrúar:
- Fáir eru smitaðir af COVID á Íslandi.
- Þess vegna er hægt að slaka aðeins á reglum í samfélaginu. Við þurfum öll að hjálpast að og gæta okkar.
- Það mega ekki fleiri en 20 manns hittast. Það gildir ekki um börn fædd árið 2005 og yngri.
- Við þurfum að hafa 2 metra fjarlægð á milli okkar og annarra. Ef við getum það ekki þarf að vera með grímu.
- 2 metrar eru eins og 2 stórir hundar í röð eða 1 bíll
eða

- Börn fædd árið 2005 og yngri þurfa ekki að vera með grímu.
- Ef þú hefur fengið COVID-19 eða getur ekki verið með grímu vegna heilsu eða fötlunar þarftu þess ekki. En allir sem geta eiga að vera með grímu.
Skemmtun
- Skemmistaðir, krár og spilasalir / spilakassar mega opna aftur en ekki lengur en til 10 um kvöld.
- Listir, sýningar og söfn: 150 mega koma.
- Viðburðir hjá trúfélögum og lífsskoðunar-félögum, t.d. jarðarfarir: 150 mega koma.
- Heilsurækt og líkamsrækt: klefar eru aftur opnir og æfingar í tækjasal leyfðar, líka hópæfingar.
Sjá frétt stjórnvalda hér.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
