Þroskahjálp merki
EN

Atvinna fyrir alla - allra hagur

Öryrkjabandalag Íslands, Landssamtökin Þroskahjálp, Rannsóknasetur í fötlunarfræðum og Vinnumálastofnun bjóða til málþings um atvinnumál fólks með skerta starfsgetu. Fyrirlesarar eru fatlað fólk, fræðafólk, stjórnendur fyrirtækja og aðrir sérfræðingar. Einnig heyrast raddir opinbera geirans.

Birt þann:

21.05.2015

Atvinna fyrir alla - allra hagur

Öryrkjabandalag Íslands, Landssamtökin Þroskahjálp, Rannsóknasetur í fötlunarfræðum og Vinnumálastofnun bjóða til málþings um atvinnumál fólks með skerta starfsgetu. Fyrirlesarar eru fatlað fólk, fræðafólk, stjórnendur fyrirtækja og aðrir sérfræðingar. Einnig heyrast raddir opinbera geirans.

Málþingið verður haldið á Grand hótel Reykjavík 21. maí kl. 08:30 - 12:00

Ekkert þátttökugjald en nauðsynlegt að skrá sig.

Dagskrá:

ATVINNA FYRIR ALLA – ALLRA HAGUR

Málþing um atvinnumál fólks með skerta starfsgetu

fimmtudaginn 21. maí 2015, kl. 8.30 – 12.00 á Grand Hóteli Reykjavík

08:30 – 08:40 Setning: Halldór Sævar Guðbergsson, varaformaður Öryrkjabandalags Íslands

08:40 – 08:50 Ávarp: Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra

08:50 – 09:10 Staða fatlaðs fólks á vinnumarkaði í Evrópu: Dr. Stefan C Hardonk, Rannsóknasetri í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands

09:10 – 09:30 Reynslusögur

09:30 – 09:50 Kaffi

09:50 – 10:10 Vinnumarkaður fyrir alla: Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar

10:10 – 10:30 „Samvinna er lykilorðið - framlag sveitarfélaga til atvinnumála fatlaðs fólks“: Tryggvi Þórhallsson, lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

10:30 – 10:45 Reynslusaga atvinnurekanda: Sigrún Björk Jakobsdóttir, Hótelstjóri Icelandair hótel á Akureyri

10:45 - 11:00 Reynslusaga konu með skerta starfsgetu: Svanhildur Anna Sveinsdóttir, starfsmaður Icelandair hótel Akureyri

11.00 – 11.20 Hringsjá og hvað svo?: Helga Eysteinsdóttir, forstöðumaður Hringsjár náms- og starfsendurhæfingar

11:20 – 11:40 Gagnkvæmur ávinningur - um vinnumarkað án aðgreiningar: Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri Festu, miðstöðvar um samfélagsábyrgð fyrirtækja og kennari í viðskiptasiðfræði og samfélagsábyrgð við Háskólann í Reykjavík

11:40 – 11:50 Stevie Wonder skiptir um starfsvettvang: Hugleiðing Kolbrúnar Daggar, MA nema í fötlunarfræði

11:50 – 12:00 Málþingsslit: Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Málþingsstjóri: Steinunn Þóra Árnadóttir, alþingismaður

Málþingið er ætlað öllu áhugafólki um efnið,stjórnendum fyrirtækja og stofnana, bæði í einkageiranum og ekki síst hjá ríki og sveitarfélögum.

Ekkert þátttökugjald

Skráning og upplýsingar um túlkun eru á vef Öryrkjabandalags Íslands, www.obi.is, Síðasti skráningardagur er 19. maí 2015.

Hér

er hægt að skrá sig

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt