Þroskahjálp merki
EN

Áskorun vegna skýrslu Ríkisendurskoðunar

Átta frjáls félagasamtök, sem öll vinna á einn eða annan hátt í þágu barna og unglinga, taka heilshugar undir hvert orð sem fram kemur í nýútkominni skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga. Félögin skora á stjórnvöld að bregðast nú þegar við athugasemdum sem fram koma í skýrsluni.

Birt þann:

24.02.2016

Þau félög sem að áskoruninni standa eru ADHD samtökin,Átak, félag fólks með þroskahömlun, Barnaheill - Save the Children á Íslandi, Einhverfusamtökin, Einstök börn,Landssamtökin Þroskahjálp, Sjónarhóll ráðgjafarmiðstöðog Umhyggja – félag til stuðnings langveikum börnum.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar til Alþingis um geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga er undirstrikuð sú alvarlega staða sem uppi er og hefur verið um langa hríð. Að mati Ríkisendurskoðunar er sá langi biðtími sem hefur einkennt geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga óviðunandi. Auk þess að ganga gegn lögbundnum skyldum ríkisins stefnir þessi bið bæði langtímahagsmunum þess og velferð borgaranna í tvísýnu. Ef ekki er tekið á markvissan hátt á geðheilsuvanda barna og unglinga um leið og hans verður vart aukast til muna líkur þess að þungbærar og langvarandi afleiðingar, jafnvel örorka, komi síðar fram.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar segir að stjórnvöld hafi ótvíræðar skyldur þegar kemur að geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga. Lög um heilbrigðisþjónustu, lög um réttindi sjúklinga, lög um málefni fatlaðs fólks og Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, tryggja börnum og unglingum rétt til eins fullkominnar heilbrigðisþjónustu og tök eru á að veita og fela stjórnvöldum þá skyldu að sjá þeim fyrir þeirri umönnun sem velferð þeirra krefst.

Félögin sem að áskoruninni standa segja að seint verði undirstrikað mikilvægi snemmtækrar íhlutunar á grunnstigi og hver beinn fjárhagslegur ávinningur hlýst af henni. Ótalin séu þá þau áhrif sem aðgerðaleysi hefur óhjákvæmilega á þann sem þjónustuna skortir og alla sem að honum standa.

Félögin skora því á stjórnvöld að bregðast nú þegar við athugasemdum sem fram eru settar í skýrslu Ríkisendurskoðunar. Frjáls félagasamtök hafi til fjölda ára, ítrekað vakið athygli á ástandinu og afleiðingum aðgerðaleysis. Nú sé lag til að láta verkin tala og félögin treysti því að ráðamenn sýni skilning sinn í verki.

Áskorun félaganna

SKÝRSLA RÍKISENDURSKOÐUNAR

Vefir félaganna sem að áskoruninni standa:

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt