Þroskahjálp merki
EN

Ályktun stjórnar Landssamtakanna Þroskahjálpar.

Stjórn Landssamtakanna Þroskahjálpar átelur harðlega það virðingar- og tillitsleysi sem allt of oft einkennir samskipti stjórnvalda ríkis og sveitarfélaga við fatlað fólk. Stjórnin bendir á að virðing og tillitssemi á vera leiðarljós við alla framkvæmd þjónustu við fatlað fólk, eins og er sérstaklega áréttað í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem íslensk stjórnvöld hafa skuldbundið sig til að virða og framfylgja.

Birt þann:

25.11.2016

Ályktun stjórnar Landssamtakanna Þroskahjálpar.

Ályktun stjórnar Landssamtakanna Þroskahjálpar.

Stjórn Landssamtakanna Þroskahjálpar átelur harðlega það virðingar- og tillitsleysi sem allt of oft einkennir samskipti stjórnvalda ríkis og sveitarfélaga við fatlað fólk.

Stjórnin bendir á að virðing og tillitssemi á vera leiðarljós við alla framkvæmd þjónustu við fatlað fólk, eins og er sérstaklega áréttað í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem íslensk stjórnvöld hafa skuldbundið sig til að virða og framfylgja.

Stjórnin vekur athygli á tveimur málum sem nú eru í gangi þar sem þetta virðingar- og tillitsleysi birtist með skýrum hætti.

Frá árinu 2010 hefur verið ákvæði í íslenskum lögum um að lögfesta skuli notendastýrða persónulega aðstoð (NPA) sem eitt meginform þjónustu við fatlað fólk. Það hefur þó ekki enn verið gert og ekki hefur verið gengið frá samningum milli ríkis og sveitarfélaga um fjármögnun þjónustunnar. Fatlað fólk sem hefur samninga um NPA-þjónustu og er mjög háð henni býr því við algjöra óvissu og óöryggi um stöðu sína og framtíð og þeir sem hafa hug á að sækja um slíka þjónustu geta ekki gert það því að rétturinn til hennar hefur ekki verið lögbundinn. Reykjavíkurborg hefur ekki viljað staðfesta að hún muni leggja til sinn hluta fjármögnunar þeirra. Sú afstaða borgarinnar eykur enn á óvissu og óöryggi þess fatlaða fólks sem í hlut á.

Þá átelur stjórnin harðlega það virðingar- og tillitsleysi sem Reykjavíkurborg hefur sýnt í máli ungrar fatlaðrar konu, Salbjargar Óskar Atladóttur, sem nú er rekið fyrir dómstólum þar sem Reykjavíkurborg hefur neitað henni um að fá búa á heimili sem foreldrar hennar hafa búið henni og þar sem hún vill vera. Stjórnin skorar á Reykjavíkurborg að leysa þetta mál án tafar með virðingu og tillitssemi að leiðarljósi.

Nóvember 2016.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt