Þroskahjálp merki
EN

Alþjóðlegur dagur fólks á flótta

Í dag, 20. júní, er alþjóðlegur dagur fólks á flótta. Aldrei fyrr í mannkynssögunni hefur jafn margt fólk verið á flótta, eða um 100 milljónir manna sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna stríðsátaka, ofsókna, hamfara, fátæktar eða annarra ástæðna.

Birt þann:

20.06.2022

Alþjóðlegur dagur fólks á flótta

Ljósmynd: Ahmed Akacha / Pexels

Í dag, 20. júní, er alþjóðlegur dagur fólks á flótta. Aldrei fyrr í mannkynssögunni hefur jafn margt fólk verið á flótta, eða um 100 milljónir manna sem hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna stríðsátaka, ofsókna, hamfara, fátæktar eða annarra ástæðna.

Fatlað fólk er sérstaklega berskjaldað í hamfara- og neyðarástandi enda fjallar samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sérstaklega um stöðu fatlaðs fólks sem býr við slíkar aðstæður og hlutverk stjórnvalda og alþjóðasamfélagsins. Fatlað fólk getur illa flúið, orðið sér úti um vatn, mat og nauðsynjavörur. Þá taka neyðaráætlanir sjaldan mið af þörfum þess og það er líklegra til að vera skilið eftir.

Landssamtökin Þroskahjálp hafa lagt ríka áherslu á að íslensk stjórnvöld sinni skyldum sínum gagnvart fötluðu fólki á flótta. Samtökin hafa starfað m.a. með Rauða krossi Íslands, utanríkisráðuneytinu og Útlendingastofnun til þess að reyna að tryggja að fatlað fólk njóti verndar, þörfum þess sé mætt og að í allri vinnu sé hugað að þessum hópi fólks á flótta.

Á þessum degi, alþjóðlegum degi fólks á flótta, hugsum við til þeirra sem hafa þurft að flýja heimili sín og heitum því að sofna aldrei á verðinum í baráttunni fyrir betri heimi fyrir fatlað fólk, hvar sem það býr.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt