Undirrituð samtök vilja koma á framfæri og lýsa yfir áhyggjum sínum sem lúta að stöðu fatlaðra barna í sveitarfélögum þar sem fyrirhugað er að verkföll Kennarasambands Íslands hefjist um næstu mánaðamót. Til félaganna hafa leitað foreldrar fatlaðra barna og óskað eftir aðstoð og ráðgjöf varðandi úrræði fyrir börn sín, ef til verkfalls kemur.
Undirrituð samtök styðja kjarabaráttu kennara en binda vonir við að samningar náist sem fyrst og að viðræður leysist á farsælan hátt. Þrátt fyrir stuðning samtakanna við kjarabaráttu kennara er samtökunum nauðsynlegt og skylt að standa vörð um réttindi fatlaðra barna og fjölskyldna þeirra. Þjónustuþörf þessara fjölskyldna er mikil og tryggð með lögum, m.a. með lögum nr. 38/2018 um réttindi fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir.
Fyrrnefnd lög leggja ríkar skyldur á sveitarfélög landsins að þjónusta fötluð börn. Í lögunum er kveðið á um að opinberum aðilum beri að tryggja að þjónustan sé samþætt og samfelld.
Skyldur sveitarfélaga gagnvart fötluðum börnum breytast ekki þrátt fyrir að verkfall hefjist og skólastarfsemi falli niður. Undirrituð samtök telja að sveitarfélögum beri að gera ráðstafanir og tryggja að fyrrnefnd börn fái nauðsynlega þjónustu vegna fatlana sinna á meðan verkfalli stendur, þrátt fyrir að fá ekki kennslu í leik- eða grunnskóla sínum.
Undirrituð samtök biðla til undanþágunefndar Kennarasamband Íslands og sveitarfélaganna að taka til greina þær undanþágubeiðnir sem berast til nefndarinnar frá foreldrum fatlaðra barna og skólastjórum skóla þeirra, en sé talið að beiðnirnar uppfylli ekki skilyrði lagaákvæða um undanþágu telja undirrituð samtök að sveitarfélögin beri að tryggja að ekki verði þjónusturof við fötluð börn innan sveitarfélags.
Undirritað:
Umhyggja félag langveikra barna, Landssamtökin Þroskahjálp, Einhverfusamtökin,
Sjónarhóll ráðgjafarmiðstöð og ÖBÍ réttindasamtök.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Almanakssalan hafin!
Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.
