Þroskahjálp merki
EN

Aðeins 8 komast inn í starfstengt diplómunám HÍ

Háskóli Íslands tekur á ári hverju á móti nemendum í starfstengt diplómunám fyrir fólk með þroskahömlun. Í ár fengu eingöngu 8 nemar skólavist af þeim 16 sem sóttu um það.

Birt þann:

22.08.2023

Aðeins 8 komast inn í starfstengt diplómunám HÍ

Háskóli Íslands tekur á ári hverju á móti nemendum í starfstengt diplómunám fyrir fólk með þroskahömlun. Í ár fengu eingöngu 8 nemar skólavist af þeim 16 sem sóttu um það.

Á sama tíma og það er afar ánægjulegt að 8 nemar hefji nám við starfstengda diplómanámið við Háskóla Íslands þetta haustið er bagalegt til þess að vita að ekki öll fengu aðgengi að náminu sem sóttust eftir að stunda námið.

Landssamtökin Þroskahjálp vilja brýna stjórnvöld til þess að opna háskólann enn frekar þannig að fötluðum ungmennum sem kjósa að halda áfram námi fái til þess tækifæri.

Nám getur verið lykill að frekari tækifærum úti í atvinnulífinu og ekki síst fyrir fatlað fólk. Að fá tækifæri til þess að efla sig og þroska í gegnum nám er dýrmætt og mikilvægt fyrir okkur öll.

Fjárskortur er enn fyrirstaða þess að öll fötluð ungmenni njóti sömu tækifæra og önnur ungmenni til að stunda háskólanám, og það er algjörlega óboðlegt með öllu.

Á Íslandi er réttur til náms bundinn í lög og eiga þau við öll sem það kjósa. Ríkisstjórnin vinnur nú að innleiðingu samnings Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks með sérstakri landsáætlun og hyggst lögfesta samninginn á kjörtímabilinu.

Það er lofsvert og orð eru til alls fyrst en nú er mjög tímabært að ráðherrar fari að að láta verkin tala.

24. gr. samningsins hefur yfirskriftina Menntun og þar stendur skýrum stöfum:

Aðildarríkin viðurkenna rétt fatlaðs fólks til menntunar. Í því skyni að þessi réttur verði að veruleika án mismununar og á grundvelli jafnra tækifæra skulu aðildarríkin tryggja menntakerfi án aðgreiningar á öllum skólastigum og við símenntun. … Aðildarríkin skulu tryggja að fatlað fólk hafi aðgang að almennu námi á háskólastigi, starfsþjálfun, fullorðinsfræðslu og símenntun án mismununar og til jafns við aðra. Aðildarríkin skulu, í þessu skyni, tryggja að fatlað fólk fái notið viðeigandi aðlögunar.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt