Þroskahjálp merki
EN

Að berja í brestina fær viðurkenningu Þroskahjálpar

Þroskahjálp veita viðurkenningu fyrir lokaverkefni til B.A. gráðu í Þroskaþjálfafræðum við Háskóla Íslands. Í ár hlaut verkefnið ,,Að berja í brestina'' verðlaunin, en höfundar verkefnisins útbjuggu fræðsluhefti um algengar geðraskanir og meðferðarmöguleika á auðlesnu máli.

Birt þann:

14.06.2024

Að berja í brestina fær viðurkenningu Þroskahjálpar

Að berja í brestina fær viðurkenningu Þroskahjálpar.

Frá árinu 2014 hafa samtökin veitt viðurkenningu fyrir lokaverkefni til B. A. gráðu í þroskaþjálfafræðum við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Markmiðið er að stuðla að nýsköpun og vekja athygli á framúrskarandi verkefnum sem nýtast fólki með þroskahömlun og skyldar fatlanir og einhverfu fólki.

Leiðbeinendur lokaverkefna tilkynna þau verkefni sem þeim finnst skara fram úr og tekur dómnefnd við öllum tilnefningum og velur þar úr eitt verkefni. Að þessu sinni voru fulltrúar í dómefnd frá Landssamtökunum Þroskahjálp, Þroskaþjálfafélagi Íslands og Háskóla Íslands.

Tilnefnd voru þrjú framúrskarandi verkefni. Öll þessi verkefni eru mikilvæg og það er ósk okkar að sjá þessi verkefni þróast áfram.

Það verkefni sem hlaut viðurkenninguna í ár er ,,Að berja í brestina - Þróun aðgengilegrar geðheilbrigðisfræðslu fyrir einstaklinga með þroskahömlun.''

Fræðileg greinagerð og fræðsluhefti um algengustu geðraskanir, leiðir til að líða vel og meðferðarmöguleika, annað á auðlesnu máli og hitt á auðlesnu máli með myndum til stuðnings.

Höfundar verkefnisins eru Dagný Birna Indriðadóttir og Gyða Stefanía Halldórsdóttir.

Mikil vöntun er á fræðslu í tengslum við geðheilbrigði fyrir fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir og einhverft fólk.

Verkefnið er því þarft innlegg um geðheilsu, upplýsingar um geðheilbrigði, geðraskanir og meðferðarmöguleika á auðlesnu máli og aðgengilegu formi, sem stuðlar vonandi að bættu heilsulæsi.

Mikilvægi fræðsluefnisins og útfærsla þess er vel rökstudd í greinagerðinni sem byggir á góðri fræðilegri umfjöllun og nýlegum rannsóknum um flesta þá þætti sem tengjast efninu.

Þá eykur það gildi verkefnis að útfæra það einnig með myndum sem gerir innihald fræðslunnar enn skýrari og stækkar hópinn sem getur nýtt sér þetta til muna.

Verkefnið er því mjög hagnýtt fyrir fólk með þroskahömlun og fyrir fagfólk sem starfar með fötluðu fólki.

Við óskum Dagnýju Birnu og Gyðu Stefaníu innilega til hamingju, Í verðlaun fá þær peningaverðlaun að upphæð 100.000 krónur.

Önnur verkefni sem voru tilnefnd:

,.Fordómar og ótti byggja á vanþekkingu‘‘.

Bæklingur fyrir verðandi foreldra eða foreldra sem voru að eignast barn með Downs heilkenni. Verkefnið tekur á mikilvægu siðferðilegu málefni sem vert er að vekja athygli á. Bæklingurinn leggur áherslu á að við erum öll einstök og búum yfir ólíkum hæfileikum og eigum öll okkar drauma.

Höfundar: Díana Sif Gunnlaugsdóttir og Hanna Dís Elvarsdóttir.

,,Tengjumst.''

Aðgengilegt smáforrit sem tengir saman fatlað fólk og aðstoðarfólk.

Smáforrit sem er til þess fallið að ýta undir valdeflingu og sjálfstæði fatlaðs fólks þegar kemur að því að velja sér aðstoðarfólk.

Höfundar: Alexandra Einarsdóttir, Daði Steinn Jónsson og Hekla Sóley Arnarsdóttir.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt