Þroskahjálp merki
EN

6 milljarðar til sveitarfélaganna til þjónustu fatlaðs fólks

Birt þann:

19.12.2023

6 milljarðar til sveitarfélaganna til þjónustu fatlaðs fólks

Mikilvægum áfanga náð fyrir helgi þegar fulltrúar stjórnvalda undirrituðu samkomulag um að hækka útsvarsprósentu sveitarfélaga til að koma til móts við kostnað þeirra vegna þjónustu við fatlað fólk. 6 milljarðar kr. færast frá ríki til sveitarfélaga við þetta samkomulag.

„Þetta eru góðar fréttir fyrir fatlað fólk sem hefur beðið lengi eftir lögbundinni þjónustu.“ segir Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Þroskahjálpar. „Þetta er gríðarlega mikilvægt fyrir stóran hóp fatlaðs fólks sem hefur verið í fjöldamörg ár á biðlista eftir sértæku húsnæði, en biðlistar hafa lengst á undanförnum árum. Mikilvægt er að samræma þjónustu fyrir fatlað fólk á landinu öllu og tryggja að allir fái þá þjónustu sem þeir þurfa sem er í samræmi við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem stefnt er að að verði lögfestur á kjörtímabilinu.“

Nánar er fjallað um málið á vef RÚV.is.

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Réttinda­barátta og réttindagæsla í 50 ár

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er fyrsta greinin í ritröðinni, eftir Halldór Gunnarsson.

Lesa pistil
Pistlar og greinar

Þroska­hjálp 50 ára: Yfir­færslan 2011 – horft yfir veginn

Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga fjórir fyrrverandi formenn samtakanna niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar – fyrr og nú. Þetta er önnur greinin í ritröðinni, eftir Gerði Aagot Árnadóttur.

Lesa pistil
Fréttir

Almanakssalan hafin!

Sala á almanaki Þroskahjálpar 2027 er nú í fullum gangi.

Lesa frétt