Landssamtökin Þroskahjálp skora á íslensk stjórnvöld til að endurskoða ákvörðun sína um að senda úr landi Yazan Tamimi, 12 ára palestínskan dreng með Duchenne hrörnunarsjúkdóminn.
Skoða verður ítarlega stöðu fjölskyldu Yazans og taka tillit til fötlunar Yazans og þeirrar staðreyndar að vegna Duchenne sjúkdómsins þarf hann stöðuga sérhæfða læknisþjónustu.
Að senda dreng í þeirri stöðu sem Yazan er úr landi og í algjöra óvissu er mjög ómannúðlegt og fer í bága við réttindi og vernd sem fötluð börn eiga að njóta samkvæmt barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og samningi Sameinuðu Þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
Tengt efni

Þroskahjálp 50 ára: Að geta gert ráð fyrir góðu lífi
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga formenn samtakanna fyrr og nú niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar. Þetta er fimmta greinin í ritröðinni.

Þroskahjálp 50 ára: Krefjumst þess að stjórnvöld standi við þau réttindi sem þau hafa sjálf lögfest
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga formenn samtakanna fyrr og nú niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar. Þetta er þriðja greinin í ritröðinni.

Þroskahjálp 50 ára: Sundlaugin er ekki vandamálið
Landssamtökin Þroskahjálp fagna 50 ára afmæli um þessar mundir. Í tilefni þess stinga formenn samtakanna fyrr og nú niður penna og rifja upp nokkur af helstu baráttumálum Þroskahjálpar. Þetta er fjórða greinin í ritröðinni.
