Samstöðu-tónleikar fyrir Úkraínu

Fatlað fólk er sérstaklega berskjaldað í stríðsátökum og staðan í Úkraínu er grafalvarleg.
Fatlað fólk getur illa flúið, orðið sér út um nauðsynjar og er í mikilli hættu á að verða fyrir ofbeldi.

Hreyfingar fatlaðs fólks standa nú fyrir söfnun til þess að styðja við fatlað fólk í Úkraínu.

Í dag, 24. mars, verður hátíðardagskrá í Hörpu þar sem allur ágóði rennur óskiptur til söfnunarinnar.

Reikningur
526-26-5281

 

Kennitala
521176-0409