Þroskahjálp merki
EN

Skóli án aðgreiningar: aðferð til að tryggja mannréttindi

Framkvæmdastjóri Þroskahjálpar og verkefnastjóri í málefnum barna hjá Þroskahjálp skrifa um skóla án aðgreiningar: Ef við samþykkjum mannréttindi fatlaðs fólks í orði, en höfnum þeim í framkvæmd þegar á reynir, þá er hætt við að réttindin verði innantóm.

Birt þann:

26.01.2026

Skóli án aðgreiningar: aðferð til að tryggja mannréttindi

Höfundar:

Katarzyna Kubiś

verkefnastjóri í málefnum barna hjá Þroskahjálp

Anna Lára Steindal

framkvæmdastjóri Landssamtakanna Þroskahjálpar

Umræða um skóla án aðgreiningar hefur á undanförnum misserum einkennst af vaxandi efasemdum og jafnvel uppgjöf. Bent er á raunverulegar áskoranir í skólakerfinu: álag á kennara, skort á stuðningi, flóknar og fjölbreyttar þarfir nemenda og kerfi sem nær ekki að mæta þeim með fullnægjandi hætti. Þessar áhyggjur eru skiljanlegar og þær ber að taka alvarlega.

Það sem vekur þó sérstaka athygli er að þessi umræða sem hafnar skóla án aðgreiningar fer fram á sama tíma og Ísland hefur loksins lögfest samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þar með hefur ríkið skuldbundið sig til að tryggja fötluðu fólki full og jöfn mannréttindi, þar á meðal rétt barna til menntunar án aðgreiningar.

Í því ljósi blasir við ákveðin þversögn: að fagna lögfestingu mannréttindasamnings annars vegar, en efast um — eða jafnvel hafna — einni af grundvallarforsendum hans hins vegar.

Skóli án aðgreiningar er aðferðafræði sem grundvallast meðal annars á mannréttindasamningi sem lögfestur hefur verið á Íslandi og felur í sér leið til að tryggja að öll börn, óháð fötlun eða öðrum aðstæðum, njóti raunverulega réttinda sinna til menntunar og jafnrar þátttöku í samfélaginu. Þegar þessi aðferðafræði bregst er varasamt að efast um réttindin, það bendir frekar til þess að innleiðingin hafi verið ófullnægjandi.

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks byggir á þeirri grundvallarhugsun að samfélagið eigi að laga sig að fjölbreytileika mannfólksins — ekki öfugt. Skólakerfið er þar engin undantekning. Þegar við segjum að skóli án aðgreiningar „virki ekki“ án þess að greina hvort börn hafi í raun fengið þann stuðning og faglegu nálgun sem samningurinn gerir ráð fyrir, er hætt við að við séum að rugla saman réttindum og framkvæmd.

Það er bæði skiljanlegt og eðlilegt að hafa áhyggjur af því að stuðning skortir og kröfur á starfsfólk eru að aukast í skólakerfinu. En lausnin á þeim vanda felst ekki í því að fórna mannréttindum barna sem við höfum skuldbundið okkur til að fylgja. Lausnin felst í því að taka skuldbindingarnar alvarlega og endurskoða framkvæmdina.

Ef við samþykkjum mannréttindi fatlaðs fólks í orði, en höfnum þeim í framkvæmd þegar á reynir, þá er hætt við að réttindin verði innantóm.

Skóli án aðgreiningar er ekki loforð um vandalausan veruleika. Hann er yfirlýsing um hvernig samfélag við ætlum að vera og felur í sér kröfu um að við berum sameiginlega ábyrgð á því að láta þá hugsjón rætast.

Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar

Katarzyna Kubiś, verkefnisstjóri í málefnum barna hjá Þroskahjálp

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Kílómetragjald á umönnun

Grein í tilefni af fyrirhugaðri 15,9% hækkun kílómetragjalds Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027.

Lesa
Fréttir

Stafræn gjá – hugleiðing frá Mennskri ráðgjöf og Þroskahjálp

Út er komin skýrsla um um hvernig megi auka stafrænt aðgengi fólks í Evrópu. Skýrslan er unnin af rannsóknarsetri sem kallar sig EPSON sem er stutt af Evrópusambandinu. Þroskahjálp og Mennsk ráðgjöf skoðuðu skýrsluna í sameiningu.

Lesa
Fréttir

Aðgengi á Menningarnótt 2026

Reykjavíkurborg hefur sent frá sér upplýsingar um aðgengi á Menningarnótt: Á Menningarnótt verður hluti miðborgarinnar lokaður allri bílaumferð til tryggja öryggi gangandi vegfarenda, og verða engar undantekningar gerðar á því. Bílastæði fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

Lesa