Þroskahjálp merki
EN

Opið bréf Þroskahjálpar og ÖBÍ til ráðherra og alþingismanna vegna Yazans

ÖbÍ og Þroskahjálp hafa sent áskorun á þingmenn og ráðherra um að láta sig mál Yazans varða og beita sér fyrir því að íslensk stjórnvöld sendi ekki fatlaðan dreng úr landi sem líklegt er að setja líf hans í hættu.

Birt þann:

28.06.2024

Opið bréf Þroskahjálpar og ÖBÍ til ráðherra og alþingismanna vegna Yazans

Höfundar:

Unnur Helga Óttarsdóttir

formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Alma Ýr Ingólfsdóttir

formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Áskorun til ráðherra og þingmanna

Efni: Áhyggjur ÖBÍ réttindasamtaka og Landssamtakanna Þroskahjálpar vegna niðurstöðu úrskurðar um flutning 11 ára drengs með Duchenne vöðvarýrnun úr landi.

Undirritaðar fyrir hönd ÖBÍ réttindasamtaka og Landssamtakanna Þroskahjálpar hafa verið upplýstar um úrskurð kærunefndar útlendingamála nr. 645/2024, dags. 14. júní 2024. Úrskurðurinn felur í sér að 11 ára drengur að nafni Yazan M. K. Aburajabtamimi sem er greindur með Duchenne vöðvarýrnunarjúkdóminn fær umsókn sína um alþjóðlega vernd ekki tekna til meðferðar á ný og að fyrir liggur endanleg niðurstaða á stjórnsýslustigi um að senda hann til Spánar ásamt fjölskyldu sinni.

Samtökin eru á meðal fjölmargra hagsmuna- og mannúðarsamtaka sem hafa opinberlega tjáð sig um mál Yazan og lýst sig mótfallin flutningi hans úr landi. Byggir sú afstaða á þekkingu samtakanna á einkennum sjúkdómsins og því hve alvarlegur hann getur reynst börnum. Einnig á afdráttarlausu mati lækna og annarra meðferðaraðila á þeirri hættu sem getur falist í flutningi Yazan úr landi í ljósi fötlunar hans. Jafnframt á þörf Yazan fyrir þá sérhæfðu aðstoð sem honum er nauðsynleg og hann fær hér á landi og þeirri óvissu sem ríkt hefur um stöðu hans á Spáni og ríkir enn.

Í fyrri úrskurði kærunefndar útlendingamála, dags. 21. mars 2024, lagði nefndin til grundvallar að Yazan væri ekki búinn að vera undir sérstöku eftirliti eða í meðferð vegna sjúkdóms hans hér á landi og að ekkert benti til þess að frekari gögn um heilsufar gætu haft áhrif á niðurstöðu málsins. Eftir uppkvaðningu úrskurðarins lagði nýr lögmaður fjölskyldunnar fram fjölda heilsufarsgagna sem tóku af allan vafa um hið gagnstæða. Í hinum nýja úrskurði dags. 14. júní 2024 segir að það sé mat kærunefndar að hin nýju framlögðu heilsufarsgögn hafi aðeins að geyma nýrri og ítarlegri upplýsingar um aðstæður og líðan drengsins og foreldra hans hér á landi og væru aðeins til fyllingar þeim upplýsingum sem lágu fyrir við meðferð máls kæranda hjá nefndinni. Samtökin furða sig á þeim orðum kærunefndarinnar. Meðal þess sem lögmaður fjölskyldunnar lagði fram með endurtekinni umsókn voru læknisvottorð þar sem fram kemur að Yazan hafði verið í umfangsmiklum meðferðum hjá nokkrum sérhæfðum meðferðaraðilum. Má þá þegar telja ljóst að rangar eða ónógar upplýsingar um stöðu Yazan hvað varðar fötlun hans, sjúkdóm og meðferðir hafi legið til grundvallar úrskurðinum, dags. 21. mars 2024. Enn fremur komu fram í nýjum læknisvottorðum lækna sem ekki höfðu áður skilað vottorðum í málinu afdráttarlaus möt á þeirri hættu sem gæti falist í flutningi Yazan úr landi. Í læknisvottorði kom m.a. fram að rof á þeirri þjónustu sem hann þegar njóti geti verið honum lífshættuleg.

Í úrskurðinum, dags. 14. júní s.l., er vísað með almennum hætti til heimilda um aðgengilega heilbrigðisþjónustu á Spáni. Einnig er vísað til þess að upplýsingum um heilsufar umsækjenda um alþjóðlega vernd skuli miðlað til yfirvalda í viðtökuríki fyrir flutning. Samtökin benda á að aðeins er um að ræða almennar tilvísanir en í þeim felst engin trygging fyrir því að í tilviki Yazan verði öryggi hans tryggt. Þá er bent á að samkvæmt rannsókn kærunefndar útlendingamála sjálfrar kemur fram að spænsk stjórnvöld hafa verið gagnrýnd fyrir að tryggja ekki nógu snemma í umsóknarferli alþjóðlegrar verndar greiningu á því hvort einstaklingar séu í viðkvæmri stöðu og hafi sérþarfir af þeim sökum og að þau úrræði sem séu í boði fyrir umræddan hóp séu almenn og nái ekki að fullu utan um sérþarfir þeirra sem séu hvað viðkvæmastir. Þá sé þörf á úrbótum, einkum hvað varðar sérhæfða heilbrigðisþjónustu þegar kemur að umsækjendum um alþjóðlega vernd. Enn fremur telja samtökin það vel þekkt að algengt er að umsækjendur um alþjóðlega vernd innan Schengen svæðisins þurfi að bíða til langs tíma, jafnvel í marga mánuði, eftir að fá aðgang að viðeigandi heilbrigðisþjónustu.

Samtökin minna stjórnvöld á ríka skyldu sína til að tryggja sérstök réttindi fatlaðs fólks, þ.m.t. barna, og yfirstandandi áform ríkisstjórnarinnar um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Einnig landsáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum fatlaðs fólks sem er liður í lögfestingu samningsins. Samkvæmt upplýsingum og reynslu samtakanna er mál Yazan á meðal þeirra alvarlegustu sem komið hafa fram og varðar brottflutning fatlaðs einstaklings, n.t.t. barns, frá landinu. Sem fyrr segir eru þau gögn sem liggja fyrir í málinu afdráttarlaus um þá hættu sem getur falist í rofi á meðferðum. Þrátt fyrir það hefur niðurstaða íslenskra stjórnvalda í málinu hingað til verið að falla ekki frá flutningi Yazan úr landi. Samtökin hafa miklar áhyggjur af því að stjórnvöld taki ekki fullnægjandi tillit til réttinda og aðstæðna fatlaðs fólks við meðferð mála á sviði alþjóðlegrar verndar.

Samtökin skora á ráðherra og þingmenn að láta þetta mál sig varða og stuðla að því að fallið verði frá flutningi Yazan úr landi og tryggja með fullnægjandi hætti öryggi hans.

Reykjavík 27. júní 2024

F.h. ÖBÍ réttindasamtaka Alma Ýr Ingólfsdóttir

F.h. Landssamtakanna Þroskahjálp Unnur Helga Óttarsdóttir

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Kílómetragjald á umönnun

Grein í tilefni af fyrirhugaðri 15,9% hækkun kílómetragjalds Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027.

Lesa
Fréttir

Stafræn gjá – hugleiðing frá Mennskri ráðgjöf og Þroskahjálp

Út er komin skýrsla um um hvernig megi auka stafrænt aðgengi fólks í Evrópu. Skýrslan er unnin af rannsóknarsetri sem kallar sig EPSON sem er stutt af Evrópusambandinu. Þroskahjálp og Mennsk ráðgjöf skoðuðu skýrsluna í sameiningu.

Lesa
Fréttir

Aðgengi á Menningarnótt 2026

Reykjavíkurborg hefur sent frá sér upplýsingar um aðgengi á Menningarnótt: Á Menningarnótt verður hluti miðborgarinnar lokaður allri bílaumferð til tryggja öryggi gangandi vegfarenda, og verða engar undantekningar gerðar á því. Bílastæði fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

Lesa