Þroskahjálp merki
EN

Mannréttindi fatlaðs fólks - orð og efndir

Formenn Þroskahjálpar og ÖBÍ réttindasamtaka skrifa um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Birt þann:

03.06.2025

Mannréttindi fatlaðs fólks - orð og efndir

Höfundar:

Alma Ýr Ingólfsdóttir

formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Unnur Helga Óttarsdóttir

formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar

Mannréttindi fatlaðs fólks - orð og efndir

Alþingi fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um um réttindi fatlaðs fólks (hér eftir samningurinn) mótatkvæðalaust árið 2016 og skuldbatt þar með Ísland til að framfylgja öllum ákvæðum hans. Síðan eru liðin 9 ár.

Í 4. gr. samningsins, sem hefur yfirskriftina Almennar skuldbindingar, segir:

1. Aðildarríkin skuldbinda sig til þess að efla og tryggja að fullu öll mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk án mismununar af nokkru tagi á grundvelli fötlunar.

Aðildarríkin skuldbinda sig í þessu skyni til:

a) að samþykkja alla viðeigandi löggjöf og ráðstafanir á sviði stjórnsýslu og aðrar ráðstafanir til að tryggja þau réttindi sem viðurkennd eru með samningi þessum, ...

Samkvæmt þingsályktun, sem Alþingi samþykkti mótatkvæðalaust 3. júní 2019, átti að leggja fram á Alþingi frumvarp um lögfestingu samningsins eigi síðar en 13. desember 2020. Það hefur nú loksins verið gert.

Í stjórnarsáttmála síðustu ríkisstjórnar, sem Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri græn og Framsóknarflokkurinn stóðu að, sagði: Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks verður lögfestur.

Í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar segir: Markmiðum sínum hyggst ríkisstjórnin ná með eftirfarandi aðgerðum: Með því að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Með lögfestingu samningsins er ekki lagðar neinar kröfur á ríki og sveitarfélög umfram þau alþjóðlega viðurkenndu mannréttindi, sem íslenska ríkið skuldbatt sig til að tryggja fötluðu fólki til jafns við aðra með fullgildingu samningsins fyrir 9 árum síðan.

Með lögfestingu samningsins yrði lagaleg vernd mannréttinda, sem fatlað fólk á að njóta og hefur átt að njóta, samkvæmt íslenskum lögum og alþjóðlegum mannréttindasamningum til jafns við annað fólk, bætt og skýrð. Það er alls ekki vanþörf á því!

Er ekki löngu tímabært að íslensk stjórnvöld, ráðherrar, alþingismenn, sveitarstjórnarfólk og stjórnmálaflokkar standi nú loksins við margendurtekin fyrirheit sín gagnvart fötluðu fólki?

Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar
Alma Ýr Ingólfsdóttir, formaður ÖBÍ réttindasamtaka

Greinin birtist fyrst á Vísi.is

Til baka á upplýsingatorg

Tengt efni

Pistlar og greinar

Kílómetragjald á umönnun

Grein í tilefni af fyrirhugaðri 15,9% hækkun kílómetragjalds Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027.

Lesa
Fréttir

Stafræn gjá – hugleiðing frá Mennskri ráðgjöf og Þroskahjálp

Út er komin skýrsla um um hvernig megi auka stafrænt aðgengi fólks í Evrópu. Skýrslan er unnin af rannsóknarsetri sem kallar sig EPSON sem er stutt af Evrópusambandinu. Þroskahjálp og Mennsk ráðgjöf skoðuðu skýrsluna í sameiningu.

Lesa
Fréttir

Aðgengi á Menningarnótt 2026

Reykjavíkurborg hefur sent frá sér upplýsingar um aðgengi á Menningarnótt: Á Menningarnótt verður hluti miðborgarinnar lokaður allri bílaumferð til tryggja öryggi gangandi vegfarenda, og verða engar undantekningar gerðar á því. Bílastæði fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:

Lesa