Anna Lára Steindal hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra Landssamtakanna Þroskahjálpar.
Anna Lára hefur starfað hjá samtökunum frá árinu 2019 sem verkefnastjóri ýmissa verkefna, svo sem ungmennaráðs, fatlaðra barna og fatlaðs fólks af erlendum uppruna. Þá hefur hún á síðustu árum leitt samvinnuverkefni Þroskahjálpar í Malaví og verkefni um samspil tækni og réttinda fatlaðs fólks auk þess að sinna víðtæku samráði fyrir hönd samtakanna við stjórnvöld, önnur réttindasamtök og fólk með þroskahömlun og skyldar fatlanir. Anna Lára þekkir því vel starfsemina, hugmyndafræðina, tækifærin og áskoranirnar í baráttu Þroskahjálpar fyrir bættum hag og réttindum fatlaðs fólks.
Anna Lára hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum á sviði mannréttindamála, m.a. unnið að innflytjenda- og flóttamannamálum á vettvangi Rauða krossins, starfað sem verkefnisstjóri mannréttindamála hjá Akraneskaupstað og sinn fjölbreyttum verkefnum sem fyrirlesari og kennari í fullorðinsfræðslu, einkum á sviði jafnra tækifæra í samfélagi, sjálfbærni og fjölbreytileika. Anna Lára er með meistaragráðu í heimspeki, með áherslu á réttindi, siðfræði og fjölbreytileika. Árið 2019 lauk hún diplómanámi um sjálfbærni og sjálfbærnikennslu frá The Earth Charter Education Center sem hefur aðsetur við Friðarháskólann í Kosta Ríka.
Anna Lára hefur þegar hafið störf sem framkvæmdastjóri. Hún tekur við starfinu af Árna Múla Jónassyni, sem óskaði eftir að hætta sem framkvæmdastjóri og fara í hlutastarf sem lögfræðingur samtakanna. Árni hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra frá árinu 2015 við góðan orðstír. Á þeim tæpu 10 árum sem Árni Múli starfaði sem framkvæmdastjóri, hefur starfsemi Þroskahjálpar vaxið mjög og styrkst. Árni Múli fer heldur ekki langt, en hann mun starfa áfram hjá samtökunum sem sérfræðingur og lögfræðingur, en mikill hagur er af því að hans sérfræðiþekkingar á sviði mannréttinda og lögfræði njóti enn við innan samtakanna.
Þá hefur Fabiana Morais verið ráðin til Þroskahjálpar sem talskona fatlaðs fólks, en hún hafði starfað stuttlega á skrifstofu samtakanna sem starfsnemi fyrir ári síðan, og Þórarinn Snorri Sigurgeirsson, sem áður starfaði sem verkefnastjóri hjá Þroskahjálp, hefur tekið við sem skrifstofustjóri samtakanna.
Tengt efni

Kílómetragjald á umönnun
Grein í tilefni af fyrirhugaðri 15,9% hækkun kílómetragjalds Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027.

Stafræn gjá – hugleiðing frá Mennskri ráðgjöf og Þroskahjálp
Út er komin skýrsla um um hvernig megi auka stafrænt aðgengi fólks í Evrópu. Skýrslan er unnin af rannsóknarsetri sem kallar sig EPSON sem er stutt af Evrópusambandinu. Þroskahjálp og Mennsk ráðgjöf skoðuðu skýrsluna í sameiningu.

Aðgengi á Menningarnótt 2026
Reykjavíkurborg hefur sent frá sér upplýsingar um aðgengi á Menningarnótt: Á Menningarnótt verður hluti miðborgarinnar lokaður allri bílaumferð til tryggja öryggi gangandi vegfarenda, og verða engar undantekningar gerðar á því. Bílastæði fyrir fatlað fólk eru staðsett á eftirfarandi stöðum:
