-
Ofbeldi gegn fötluðu fólki er margs-konar. Ofbeldi er það þegar einhver meiðir þig eða lætur þér líða illa.
-
Andlegt ofbeldi er þegar einhver hótar þér, gerir lítið úr þér eða lætur þér líða illa.
-
Líkamlegt ofbeldi er þegar einhver meiðir þig, hrindir þér, klípur eða sparkar í þig.
-
Kynferðislegt ofbeldi er það þegareinhver neyðir þig til að gera eitthvað kynferðislegt sem þú vilt ekki gera eða káfar á þér. Það þýðir að snertir þig á kynferðislegan hátt þegar þú vilt það ekki.
-
Ofbeldi getur líka verið að neita þér um aðstoð sem þú þarft nauðsynlega.
-
Fatlaðar konur eru í meiri hættu á að verða fyrir ofbeldi heldur en fatlaðir karlar og ófatlaðar konur.
-
Fötluð börn eru líka í hættu á að verða fyrir ofbeldi.
-
Stundum getur verið erfitt að skilja hvað ofbeldi er. Það getur líka verið erfitt að viðurkenna að einhver hafi verið vondur við mann og beitt mann ofbeldi.
-
Hvað get ég gert ef ég verð fyrir ofbeldi eða hef orðið fyrir ofbeldi?
-
Það er hægt að hringja eða senda skilaboð til lögreglu í síma 112.
-
Á spítalanum í Fossvogi er neyðar-móttaka fyrir fólk sem hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi. Það er mikilvægt að fara sem fyrst eftir ofbeldið þangað.
-
Stígamót hjálpa fólk sem hefur orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi að líða betur, en oft finna þeir sem verða fyrir ofbeldi fyrir slæmum tilfinningum eins og til dæmis skömm og kvíða.
-
Drekaslóð hjálpar fólki sem orðið hefur fyrir ofbeldi eða einelti.
-
Aflið er á Akureyri. Það eru samtök sem sem hjálpa fólki sem hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi eða heimilisofbeldi.
-
Kvennaathvarfið er hús þar sem konur og börn geta fengið að búa í stuttan tíma ef það er ofbeldi á heimili þeirra.
-
Bjarkarhlíð taka á móti þeim sem hafa orðið fyrir ofbeldi. Þar er hægt að fá stuðning og góð ráð.
Heimild: Hrafnhildur Snæfríðar- og Gunnarsdóttir og Rannveig Traustadóttir, „Ofbeldi gegn fötluðum konum“, Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum (2015).
Um bæklinginn:
-
Bæklingurinn var unninn af rannsóknar-setri í fötlunar-fræðum sem er í Háskóla Íslands.
-
Þau gerðu rannsókn um ofbeldi gegn fötluðum konum og hvort þær fái hjálpina sem þær þurfa.
-
Í rannsókninni var talað við fatlaðar konur sem höfðu orðið fyrir ofbeldi og við ráðgjafa sem hjálpa fólki sem hefur orðið fyrir ofbeldi.