Hvað gerist þegar fólk nær 18 ára aldri?

Landssamtökin Þroskahjálp í samvinnu við réttindavakt velferðaráðuneytisins standa fyrir fræðslukvöldum um þær breytingar sem verða í lífi fatlaðs fólks við það að komast á fullorðinsár. Fyrstu tvö kvöldin verða nú í maímánuði og verður þar fjallað um þær breytingar sem eiga sér stað á réttarstöðu fólks við 18 ára aldur . Í september og október eru síðan ráðgerð þrjú fræðslukvöld til viðbótar um nám að loknum framhaldsskóla, atvinnumál og að flytja að heiman.

Landssamtökin Þroskahjálp í samvinnu við  réttindavakt velferðaráðuneytisins   standa fyrir fræðslukvöldum um þær breytingar sem verða í lífi fatlaðs fólks við það að komast á fullorðinsár.

Fyrstu tvö kvöldin verða nú í maímánuði og verður þar fjallað um þær breytingar sem eiga sér stað á réttarstöðu fólks  við 18 ára aldur .   Í september og október eru síðan  ráðgerð þrjú fræðslukvöld til viðbótar um  nám að loknum framhaldsskóla, atvinnumál og að flytja að heiman.

Öll fræðslukvöldin verða að Háaleitisbraut 13. 4. hæð.

 „Hvað gerist þegar fólk nær 18 ára aldri?“

  Fimmtudaginn 12. maí kl 20.00-22.00

  • Munurinn á  umönnunargreiðslum og örorkubótum.
  • Hvernig er sótt um örorkulífeyri ?
  • Umönnunarbætur vegna fatlaðra barna sem búa í foreldrahúsum
    • Sólveig Hjaltadóttir starfsmaður hjá Tryggingastofnun Ríkisins

Fimmtudaginn 19. maí  kl. 20.00-22.00.

  •  Lögræði hvað hefur það í för með sér ?
    • Helga Baldvins og Bjargardóttir lögfræðingur og þroskaþjálfi
    • Lög um réttindagæslu:

Réttindagæslumenn

Persónulegir talsmenn

  • Halldór Gunnarsson starfsmaður réttindavaktar velferðaráðuneytisins
  • Auður Finnbogadóttir réttindagæslumaður í Reykjavík