Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks 10 ára.

 

Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks 10 ára.

Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun 13. desember 2006 um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Upphaf samningsins, ef svo má segja, er miðað við þann dag. Samningurinn er því 10 ára í dag, 13 desember 2016.

Markmið samningsins eru að „efla, verja og tryggja full og jöfn mannréttindi og grundvallarfrelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra, jafnframt því að efla og vinna að virðingu fyrir eðlislægri mannlegri reisn þess.“

Mikilvægustu skilaboð samningsins til okkar allra eru að fatlaðir einstaklingar eiga fullan rétt á öllum viðurkenndum mannréttindum til jafns við aðra og að fá njóta einstaklingsfrelsis eins og annað fólk. Til að svo megi verða leggur samningurinn sérstaka áherslu á tækifæri fatlaðs fólks til fullrar þátttöku á öllum sviðum mannlífsins og beinir spjótum sínum að venjum og siðum, stöðluðum ímyndum, fordómum, skaðlegri framkvæmd, einangun og útilokun sem tengist fötluðu fólki.

Mjög fáir alþjóðlegir samningar hafa verið fullgiltir af jafnmörgum ríkjum á skömmum tíma og samningurinnum um réttindi fatlaðs fólks. Á þeim 10 árum sem liðin eru frá því að Sameinuðu þjóðirnar lögðu samninginn fram hafa fleiri en 160 ríki fullgilt hann og þar með skuldbundið sig til að virða og framfylgja ákvæðum hans. Samningurinn er mjög öflugt tæki í baráttunni fyrir fullum mannréttindum fatlaðs fólks. Mikilvægasta verkefnið er þó enn og verður áfram að tryggja öllu fötluðu fólki í verki öll þau réttindi til fulls sem samningurinn mælir fyrir um. 

Eftirlitsnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur efftirlit með að ríki sem hafa fullgilt samninginn standa sig við að framfylgja honum með því að taka lög, reglur og framkvæmd þeirra út reglulega og gerir tillögur til ríkja um hvernig þau geta tekið á brotum gegn ákvæðum samningsins og tryggt fötluðu fólki full réttindi samkvæmt honum.

Staða samningsins á Íslandi.

Íslenska ríkið fullgilti samninginn sl. haust og skuldbatt sig þar með til að tryggja fötluðu fólki öll þau réttindi til fulls sem þar er mælt fyrir um.  Samningurinn var undirritaður af hálfu Íslands fyrir meira en 9 árum og höfðu langflest ríki í heiminum fullgilt samninginn þegar íslenska ríkið gerði það. Fullgilding samningsins er mikilvægur áfangi í að tryggja fötluðu fólki mannréttindi og tækifæri sem flestu ófötluðu fólki þykja sjálfsögð. Þar er mikið verk að vinna og vonandi ganga íslensk stjórnvöld rösklegar fram við það en þau hafa gert við fullgildingu þessa mikilvæga mannréttindasamnings.

Val­kvæður viðauki við samn­ing­inn.

Ísland und­ir­rit­aði val­kvæðan viðauka við samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks um leið og það und­ir­rit­aði samn­ing­inn sjálfan árið 2007. Val­kvæði viðaukinn mælir fyrir um kæru­leið fyrir ein­stak­linga og hópa sem telja að íslensk stjórn­völd hafi ekki veitt þeim þann rétt sem þeim ber sam­kvæmt samn­ingnum og hafa árang­urs­laust nýtt þau úrræði sem þeir hafa sam­kvæmt íslenskum lögum og stjórn­kerfi til að ná því fram sem þeir telja sig eiga rétt á sam­kvæmt samn­ingn­um. Eft­ir­lit­nefndin getur óskað upp­lýs­inga frá ríkjum og beint til­mælum til þeirra. Með því að full­gilda valkvæða viðaukann verður virkara aðhald með ríkjum um að fram­fylgja samn­ingn­um, réttar­ör­yggi fatl­aðs fólks meira og mann­rétt­indi þess betur var­in.

Lög­fest­ing samn­ings­ins.

Samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi barns­ins var tek­inn í íslensk lög árið 2013. Það var gert til að tryggja enn betur en gert var með full­gild­ingu samn­ings­ins þau rétt­indi sem samn­ing­ur­inn mælir fyrir um.

Sömu rök eiga við um samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks. Með því að lög­festa samn­ing­inn verður mann­rétt­indum fatl­aðs fólks veitt aukin vernd og réttar­ör­yggið eykst. Fatl­aður ein­stak­lingur getur þá borið ákvæði samn­ings­ins fyrir sig sem ótví­ræða rétt­ar­reglu fyrir dómi eða stjórn­völd­um. Lög­fest­ing mun vekja jafnt almenn­ing og þá sem fjalla um mál­efni fatl­aðs fólks fyrir dóm­stól­um, í stjórn­sýslu og við und­ir­bún­ing að laga­setn­ingu, til frek­ari vit­undar um mann­rétt­indi fatl­aðs fólks og þá virð­ingu sem verður að ætl­ast til að þeim sé sýnd í rétt­ar­ríki. Lög­fest­ing samn­ings­ins um fatlað fólk mun og auka, á alþjóða­vett­vangi, traust á virð­ingu íslenska rík­is­ins fyrir mann­rétt­indum fatl­aðs fólks.

 

Á þessum hlekk á heimasíðu Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) má skoða myndband sem gert hefur verið um samninginn í tilefni af 10 ára afmæli hans.  Skoða hér