Sleppa leiðarkerfi.

Landssamtökin Þroskahjálp - Aftur á forsíðu

Grundvallarreglur Sameinuðu þjóðanna

um jafna þátttöku fatlaðra 8. gr.


8. REGLA – TEKJUTRYGGING OG ALMANNATRYGGINGAR

Aðildarríkin eru ábyrg fyrir almannatryggingum og tekjutryggingu til handa þeim sem eru fatlaðir.

1. Aðildarríkjunum ber að tryggja að fatlaðir njóti fullnægjandi tekjutryggingar ef þeir vegna fötlunar sinnar eða af öðrum ástæðum tengdum fötlun hafa tímabundið misst tekjur eða misst af atvinnutækifærum. Aðildarríkjunum ber að sjá til þess að með tekjutryggingunni sé tillit tekið til þess kostnaðar sem fatlaðir og fjölskyldur þeirra þurfa oft að bera vegna fötlunarinnar.

2. Í ríkjum þar sem almannatryggingar, reglur um félagslegt öryggi eða annars konar félagslegt velferðarkerfi er fyrir hendi eða í mótun til hagsbóta fyrir almenning, ber ríkjunum að tryggja að slík kerfi hvorki undanskilji fatlaða né mismuni þeim.

3. Aðildarríkjunum ber einnig að veita þeim sem taka að sér umönnun fatlaðra tekjutryggingu og almannatryggingavernd.

4. Kerfi almannatrygginga skulu hafa í sér fólgna hvatningu til að fatlaðir verði á ný færir um að afla sér tekna. Slík kerfi skulu veita eða leggja af mörkum framlag til skipulagningar, þróunar og fjármögnunar á starfsþjálfun. Einnig skulu þau leggja sitt af mörkum við atvinnumiðlun.

5. Almannatryggingar skulu einnig örva fatlaða til atvinnuleitar í því skyni að byggja upp eða endurnýja getu þeirra til tekjuöflunar.

6. Tekjutryggingu skal viðhaldið á meðan fötlun varir og á þann hátt að ekki dragi úr viðleitni hins fatlaða til að leita sér vinnu. Tekjutryggingu skal hvorki skerða né fella niður fyrr en hinn fatlaði hefur öðlast fullnægjandi og öruggar tekjur

7. Í löndum þar sem einkaaðilar sjá að miklu leyti fyrir félagslegu öryggi ber aðildarríkjum að hvetja byggðarlög, velferðarsamtök og fjölskyldur til að þróa leiðir til sjálfsbjargar og hvetja til atvinnu eða atvinnutengdrar starfsemi fötluðum til handa.



Þroskahjálp
Háaleitisbraut 13
108 Reykjavík
sími 588-9390
fax 588 9272
throskahjalp@throskahjalp.is


Senda minningarkort





Við eigum samleið








 
Smellið hér til að sjá meira um tímaritið. 




 
Almanak Þroskahjálpar

VINNINGASKRÁ