Sleppa leiðarkerfi.

Landssamtökin Þroskahjálp - Aftur á forsíðu

um jafna þátttöku fatlaðra 9. gr.



9. REGLA – FJÖLSKYLDULÍF OG MANNLEG REISN

Aðildarríkjunum ber að stuðla að fullri þátttöku fatlaðra í fjölskyldulífi. Þeim ber að efla rétt þeirra til mannlegrar reisnar og tryggja að lög mismuni þeim ekki hvað varðar kynferðissambönd, hjónabönd og foreldrahlutverk.

1. Fötluðum skal gert kleift að búa með fjölskyldum sínum. Aðildarríkjunum ber að efla fjölskylduráðgjöf sem tekur til fötlunar og áhrifa hennar á fjölskyldulíf. Fjölskyldum fatlaðra skal standa til boða hvíldarþjónusta og liðveisla. Aðildarríkjunum ber að ryðja öllum ónauðsynlegum hindrunum úr vegi þeirra sem óska eftir því að fóstra eða ættleiða fatlað barn eða fullorðinn einstakling sem er fatlaður.

2. Ekki má neita fötluðum um að njóta sín sem kynverur, eiga í kynferðissambandi og verða foreldrar. Með hliðsjón af því að fötluðum getur reynst erfitt að ganga í hjónaband og stofna fjölskyldu ber aðildarríkjunum að stuðla að því að viðeigandi ráðgjafaþjónusta sé fáanleg. Getnaðarvarnir skulu vera fötluðum jafnaðgengilegar og öðrum, svo og upplýsingar um kynræna starfsemi líkamans.

3. Aðildarríkjunum ber að stuðla að aðgerðum í því skyni að breyta neikvæðri afstöðu, sem enn má finna í þjóðfélaginu, til þess að fatlaðir, einkum fatlaðar stúlkur og konur, gangi í hjónaband, lifi kynlífi eða eignist börn. Hvetja ber fjölmiðla til að taka virkan þátt í því að vinna bug á neikvæðri afstöðu af þessu tagi.

4. Fatlaðir og fjölskyldur þeirra þurfa að kunna góð skil á varúðarráðstöfunum gegn kynferðislegri og annarri misnotkun. Fatlaðir eru í sérstökum áhættuhópi hvað varðar misnotkun innan fjölskyldunnar, í samfélaginu og á stofnunum og þurfa því fræðslu um hvernig skuli forðast misnotkun, gera sér grein fyrir því þegar misnotkun hefur átt sér stað og tilkynna slík tilfelli.