Sleppa leiðarkerfi.

Landssamtökin Þroskahjálp - Aftur á forsíðu

um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi

2. gr.
  1. Sérhvert ríki sem aðili er að samningi þessum tekst á hendur að virða og ábyrgjast öllum einstaklingum innan landsvæðis síns og undir lögsögu sinni réttindi þau sem viðurkennd eru í samningi þessum án nokkurs konar mismununar svo sem vegna kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trúarbragða, stjórnmálaskoðana eða annarra skoðana, þjóðernisuppruna eða félagslegs uppruna, eigna, ætternis eða annarra aðstæðna.
  2. Sérhvert ríki sem aðili er að samningi þessum tekst á hendur, sé ekki þegar gert ráð fyrir því í lagaákvæðum sem fyrir eru eða með öðrum ráðstöfunum, að gera nauðsynlegar ráðstafanir í samræmi við stjórnskipulega meðferð og ákvæði þessa samnings, að koma á slíkum lögum eða öðrum ráðstöfunum er kunna að vera nauðsynlegar til þess að réttindum samkvæmt samningi þessum sé framfylgt.
  3. Sérhvert ríki sem aðili er að samningi þessum tekst á hendur:
    1. að ábyrgjast að sérhver maður sem hefur viðurkenndan rétt eða frelsi eins og hér er viðurkennt og brotið hefur verið á honum, skuli fá raunhæfar úrbætur, enda þótt skerðingin hafi verið framin af mönnum sem fara með stjórnvald;
    2. að ábyrgjast að sérhver maður sem krefst slíkra úrbóta skuli fá rétt sinn til þessa ákveðinn af lögbæru dóms-, stjórn- eða löggjafarvaldi eða einhverju öðru lögbæru yfirvaldi sem gert er ráð fyrir í réttarkerfi ríkisins, og hlutast til um möguleika á úrbótum samkvæmt dómi;
    3. að ábyrgjast að lögbær yfirvöld skuli framfylgja slíkum úrbótum sem veittar hafa verið.

26. gr.

Allir eru jafnir fyrir lögunum og eiga rétt á sömu lagavernd án nokkurrar mismununar. Lögin skulu því í þessu skyni banna hvers konar mismunun og ábyrgjast öllum mönnum jafna og raunhæfa vernd gegn mismunun svo sem vegna kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trúarbragða, stjórnmálaskoðana eða annarra skoðana, þjóðernisuppruna eða félagslegs uppruna, eigna, ætternis eða annarra aðstæðna.