
10. REGLA – MENNING
Aðildarríkjunum ber að tryggja að fatlaðir séu hluti af og taki þátt í menningar-starfsemi á jafnréttisgrundvelli.
1. Aðildarríkjunum ber að tryggja að fatlaðir fái tækifæri til að nýta sköpunargáfu sína sem og listræna og vitsmunalega hæfileika, ekki aðeins í eigin þágu heldur einnig í þágu samfélagsins, hvort sem er í þéttbýli eða dreifbýli. Sem dæmi má nefna dans, tónlist, bókmenntir, leiklist, formlist, málaralist og höggmyndalist. Í þróunarlöndum ber einkum að leggja áherslu á hefðbundnar og nútímalegar listgreinar, svo sem brúðuleikhús, upplestur og frásagnarlist.
2. Aðildarríkjunum ber að stuðla að aðgengi fatlaðra að stöðum þar sem menningarviðburðir eiga sér stað og menningartengd þjónusta er veitt, svo sem leikhúsum, söfnum, kvikmyndahúsum og bókasöfnum.
3. Aðildarríkjunum ber að hrinda af stað þróun og nýtingu tæknilegra úrlausna til að gera bókmenntir, kvikmyndir og leikhús aðgengileg fötluðum.
11. REGLA – TÓMSTUNDIR OG ÍÞRÓTTIR
Aðildarríkjunum ber að tryggja fötluðum jöfn tækifæri á við aðra til tómstunda- og íþróttaiðkunar.
1. Aðildarríkjunum ber að gera ráðstafanir til þess að staðir þar sem tómstunda- og íþróttaiðkun er stunduð, hótel, strendur, íþróttaleikvangar, líkamsræktarstöðvar o.s.frv., séu aðgengilegir fötluðum. Slíkar aðgerðir skulu fela í sér stuðning við starfsfólk sem sinnir íþrótta- og tómstundastarfi, þar á meðal verkefni til að bæta aðgengi, sem og verkefnum er varða þátttöku, upplýsingar og þjálfun.
2. Ferðamálayfirvöldum, ferðaskrifstofum, hótelum, sjálfboðaliðasamtökum og öðrum sem skipuleggja tómstundastarfsemi eða ferðalög ber að bjóða öllum þjónustu sína og taka tillit til sérþarfa fatlaðra. Veita ber viðeigandi fræðslu í þessu skyni.
3. Hvetja ber íþróttafélög til að skapa fötluðum möguleika til þátttöku í íþróttum. Í sumum tilvikum nægir að bæta aðgengi fatlaðra til að auka möguleika þeirra á þátttöku. Í öðrum tilvikum kann að vera þörf á sérstökum ráðstöfunum eða íþróttamótum. Aðildarríkjunum ber að styðja við þátttöku fatlaðra í íþróttamótum, bæði á landsvísu og á alþjóðlegum vettvangi.
4. Fatlaðir sem taka þátt í íþróttum skulu eiga kost á jafngóðri tilsögn og þjálfun og aðrir þátttakendur.
5. Skipuleggjendum íþrótta- og tómstundastarfs ber að leita ráða hjá samtökum fatlaðra við mótun þjónustu við fatlaða.
Þroskahjálp
Háaleitisbraut 13
108 Reykjavík
sími 588-9390
fax 588 9272
throskahjalp@throskahjalp.is
Senda minningarkort