
THE MANDATE OF ÞROSKAHJALP
(Stefnuskrá samtakanna á ensku)
Með okkar augum – hópurinn fyrir sjónvarpsþáttagerð sem stuðlar að breyttri ímynd fatlaðs fólks í samfélaginu.
Sumarið 2011 voru sýndir í ríkissjónvarpinu sjónvarpsþættirnir “Með okkar augum”. Í þáttunum eru það einstaklingar með þroskahömlun sem sinna dagskrárgerð auk þess að sjá um upptökur og tæknivinnu. Í þáttunum er fjallað um málefni líðandi stundar út frá þeirra augum. Spurningarnar eru oft óþægilega beittar, enda heiðarleikinn alltaf með í för og sýnin á veruleikann óvenju fersk. Þættirnir vöktu mikla athygli og ánægju fólks og hafa opnað augu margra fyrir margbreytileika mannlífsins og mikilvægi þess að raddir ólíkra einstaklinga fái að heyrast.
Sendiherrar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks fyrir verkefni sem gerir fatlað fólk sjálft að málsvörum samningsins.
Vorið 2011 var haldið námskeið á vegum Fjölmenntar, símenntunar- og þekkingarmiðstöðvar, þar sem hópur einstaklinga með þroskahömlun kynnti sér samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks og vann fræðsluefni til kynningar á samningnum fyrir fólk með þroskahömlun. Hópurinn var tilnefndur af Forseta Íslands sérstakir Sendiherrar samningsins og hefur kynnt fötluðu fólki og öðrum áhugasömum samninginn um allt land. Með þessu móti hefur fatlað fólk sjálft orðið málsvarar þessa mikilvæga mannréttindasamnings og miðlað þekkingu sinni á formi jafningjafræðslu.
Sérfræðingarnir fyrir atvinnustefnu sem byggir á styrkleikum einstaklinga.
Sérfræðingarnir er fyrirtæki sem hefur að markmiði sínu að gefa einhverfu fólki tækifæri til þess að nýta þá sérstöku hæfileika sem það hefur og þjálfa það út frá styrk, eiginleikum og óskum hvers og eins. Fyrirtækið vill stuðla að því að atvinnulífið fái notið þeirra hæfileika sem búa í einhverfu fólki og leggur áherslu á að þjálfa a.m.k.14-18 einhverfa einstaklinga til starfa út frá aðferðafræði Specialisterne í Danmörku sem fyrirtækið er í samstarfi við.
Þroskahjálp
Háaleitisbraut 13
108 Reykjavík
sími 588-9390
fax 588 9272
throskahjalp@throskahjalp.is
Senda minningarkort