
THE MANDATE OF ÞROSKAHJALP
(Stefnuskrá samtakanna á ensku)
stjórnun og skipulag málaflokksins og á það bent að fjárveitingar til þjónustu við fatlaða eru ekki í samræmi við þarfir og að eftirlit með þjónustu sé óviðunandi. Þá eru gerðar athugasemdir við skort á heildarstefnu í málaflokknum og engar áætlanir séu um úrlausn fyrir þá sem bíða eftir þjónustu. Á allt þetta hafa Landssamtökin Þroskahjálp margoft bent á síðustu áratugum .
Samtökin hafa í áratugi barist fyrir því að fjárveitingar til þjónustu við fatlað fólk séu í samræmi við þjónustuþörf og að gæði þjónustunnar séu tryggð en talað fyrir daufum eyrum ráðherra og Alþingis.
Þá hafa samtökin endurtekið bent á að réttindagæsla fatlaðs fólks hér á landi sé óviðunandi og þörf á grundvallarbreytingum á núverandi eftirlitskerfi til að tryggja hagsmuni notenda þjónustunnar. Þroskahjálp hefur í áranna rás ályktað um það lögbrot stjórnvalda að einstaklingur sem á rétt á þjónustu fái hana ekki, né sé honum gefin nein fyrirheit um hvenær þjónustan standi honum til boða. Ríkisendurskoðun staðfestir allar þessar athugasemdir samtakanna í skýrslu sinni.
Stjórn Landssamtakanna Þroskahjálpar skorar á félags- og tryggingamálaráðherra og Alþingi að bregðast við ábendingum Ríkisendurskoðunar af ábyrgð og tryggja að nú þegar verði unnið að nauðsynlegum úrbótum í málaflokknum með hagsmuni fatlaðs fólks að leiðarljósi.
Landssamtökin Þroskahjálp leggja áherslu á að slíkar úrbætur verði unnar í samvinnu við fatlað fólk og hagsmunasamtök þeirra.
Hægt er að nálgast skýrslu ríkisendurskoðunar í heild sinni á
http://www.rikisendurskodun.is/frettir/nanar/?tx_ttnews%5Btt_news%5D=248&cHash=d679743522
Þroskahjálp
Háaleitisbraut 13
108 Reykjavík
sími 588-9390
fax 588 9272
throskahjalp@throskahjalp.is
Senda minningarkort