Sleppa leiðarkerfi.

Landssamtökin Þroskahjálp - Aftur á forsíðu

Fræðsla



Unnið er að almennri kynningu á málefnun fatlaðra með ýmsu móti eins og ráðstefnum, námskeiðum, reglulegum fundum. Bæði er um að ræða kynningu fyrir almenning og fræðslu fyrir foreldra og aðstandendur, svo og þá sem starfa á þessu sviði. 



FFA - Fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur

Landssamtökin Þroskahjálp ásamt Sjálfsbjörgu landssambandi fatlaðra, Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra og Ás styrktarfélag standa að FFA, fræðslu fyrir fatlaða og aðstandendur. Fræðslan fer m.a. fram í formi námskeiða, einstakra fræðslukvölda, nokkurra fræðslukvölda o.fl. Þar gefst fötluðum og aðstandendum þeirra tækifæri til að hitta aðra sem eru í svipuðum sporum, kynnast sjónarmiðum þeirra og miðla af eigin reynslu. Fræðileg umfjöllun og umræður um þau efni sem tekin eru fyrir hverju sinni auka möguleika þátttakenda til að takast á við margvíslegan vanda sem fötlunin leiðir af sér.

Sem dæmi um efni sem tekin hafa verið fyrir á slíkum námskeiðum eru: Þjónusta við foreldra fatlaðra barna, unglingsárin, að flytja að heiman, að byrja í grunnskóla, framhaldsskólinn hvað svo? Kynferðislegt ofbeldi gegn fötluðum börnum, Kynning á sumartilboðum fyrir fötluð börn, fyrirlestrarröð þar sem fræðimenn hafa kynnt rannsóknir sínar sem tengjast lífi og starfi fatlaðra, o.fl. o.fl. Einnig hafa verið haldin fræðslukvöld fyrir afa og ömmur fatlaðra barna og systkini.

Öll fræðsla á vegum FFA er þátttakendum að kostnaðarlausu.

FFA heldur fræðslu á landsbyggðinni ef þess er óskað og hafa m.a. verið haldin námskeið á Akureyri, Egilsstöðum og fleiri stöðum.

Þá hefur FFA staðið að fjölmörgum ráðstefnum og málþingum m.a. um að eignast fatlað barn, notendastýrða þjónustu o.fl.

FFA tekur fúslega á móti góðum hugmyndum að hverskonar fræðsluefni og fyrirkomulagi. Sendið póst á asta@throskahjalp.is

Erindi flutt á Landsþingi:
Að byrja í grunnskóla (PowerPoint)
Framhaldsskóli (PowerPoint)
Háskólanám (PowerPoint)
Þroskahjálp ráðstefna (PowerPoint)
Skóli án aðgreiningar (PowerPoint)
Fyrstu niðurstöður Þroskahjálpar-rannsóknar (PowerPoint)

Þroskahjálp
Háaleitisbraut 13
108 Reykjavík
sími 588-9390
fax 588 9272
throskahjalp@throskahjalp.is


Senda minningarkort





Við eigum samleið








 
Smellið hér til að sjá meira um tímaritið. 




 
Almanak Þroskahjálpar

VINNINGASKRÁ

 

 



ÁBENDINGAR, FYRIRSPURNIR
O.FL. TIL SAMTAKANNA






  

LÝSING ER AÐAL STYRKTARAÐILI
LANDSSAMTAKANNA ÞROSKAHJÁLPAR