Sleppa leiðarkerfi.

Landssamtökin Þroskahjálp - Aftur á forsíðu

 

Listaverkaalmanak samtakanna 2010 komið út



Listaverkaalmanak Landssamtakanna Þroskahjálpar er prýtt bráðfallegum myndum eftir Louisu Matthíasdóttur. Að venju er almanakið einnig "happdrættismiði" þar sem vinningar eru myndir eftir fremstu listamenn þjóðarinnar á sviði grafíklistarinnar. Dregið er mánaðarlega. Ágóði af sölu almanaksins rennur til reksturs samtakanna og stendur undir stórum hluta hans. Það er því ástæða til að hvetja alla velunnara Landssamtakanna Þroskahjálpar til að festa kaup á þessum fallega og nauðsynlega prentgripi. Einfaldast er að panta almanakið hér á síðunni og munum við þá póstleggja það um hæl.

Almanakið kostar 1.800 kr.
 

Grafíkmyndir úr eldri almanökum eru seldar á skrifstofu samtakanna, Háaleitisbraut 13, 3 hæð.

Hægt er að panta almanakið með tölvupósti.

Sendið einfaldlega nafn, heimilisfang og kennitölu og almanakið verður sent ásamt gíróseðli.

Smellið hér til að skoða vinningaskrá